Líttu inn í Latabæ

Það er rík hefð fyrir skólasamkomu í skólanum. Þar koma nemendur fram með atriði, dans og söng. Samkoman er liður í fjáröflun nemenda sjöunda bekkjar sem fara í skólaferðalag í lok skólaárs. Dagskráin var fjölbreytt að vanda.

Nemendur fyrsta bekkjar fluttu okkur tónlistaratriði, Vikudagarnir, Mánuðirnir og Tek ofan hattinn eftir Soffíu Vagnsdóttur. Nemendur í þriðja bekk dönsuðu zumba dans við lagið Clap Snap eftir Icona Pop og nemendur í fimmta bekk spiluðu á marimba í upphafi samkomunnar. Stærsta atriðið á samkomunni venju samkvæmt er leikrit sjöunda bekkjar.

Nemendur sjöunda settu upp Glanni glæpur í Latabæ í leikstjórn Kolbrúnar Ödu Gunnarsdóttur. Verkið er eftir Magnús Scheving og Sigurð Sigurjónsson. Nemendur hafa verið að æfa verkið undanfarnar vikur með aðstoð frá kennurum og foreldrum.

Hvert og eitt, í hvaða atriði sem er sigrar sjálfan sig með því að koma, syngja, dansa og leika. Þess vegna er mikilvægt að halda í þessa hefð. Til hamingju með samkomuna kæru nemendur.

Nemendur fyrsta bekkjar

Nemendur þriðja bekkjar 


Athugasemdir