Jákvæður agi er uppeldisstefna byggð á sjálfsstjórnarkenningum
Höfundar:
- Alfred Adler, Rudolf Dreikurs, William Glasser, Jane Nelsen o.fl.
Það sem stýrir hegðun:
- Fólk er knúið áfram af innri þörfum að tilheyra.
Við höfum mest áhrif:
- þegar við höfum samskipti sem byggjast á gagnkvæmri virðingu.
Áhrifamestu verkfærin eru:
- samhygð, skilningur, þrautalausnir, góðvild og festa.
Virðing er:
- gagnkvæm, í samskiptum eiga allir aðilar skilið virðingu.
Viðbrögð við óæskilegri hegðun:
- Að leita orsaka, finna lausnir og fylgja ákvörðunum eftir.
Viðbrögð við hættulegri hegðun:
- Skýr eftirfylgd og rökréttar afleiðingar.
Nám fer fram þegar:
- barn upplifir tilgang, sjálfsstjórn, þátttöku.