Leyfi nemenda

Kæri forráðamaður

Þegar óskað er eftir leyfis frá skóla í 3 daga eða lengur skal fylla út eftirfarandi leyfisbeiðni. Umsjónarkennari hefur heimild til að gefa nemanda leyfi í 2 daga eða skemur. Þá skal senda honum tölvupóst.

Athygli skal vakin á því að skv. 15. gr. grunnskólalaga frá 2008 er öll röskun á námi sem hlýst af leyfum frá skóla á ábyrgð foreldra eða forráðamanna. Þar segir um tímabundna undanþágu barns frá skólagöngu: „Forráðamaður skal sjá til þess að nemandinn vinni upp það sem hann kann að missa úr námi á meðan á undanþágu stendur.“ Athugið að skóli gefur ekki upp sérstakt heimanám eða sérverkefni til nemenda í leyfum eða gerir tilfærslur á námi vegna leyfistöku.

Öll röskun á námi nemenda sem hlýst af tilkynntu leyfi, er á ábyrgð foreldra/forráðamanna. Foreldrum/forráðamönnum er bent á að hafa samband við umsjónarkennara eftir leyfið og fylgjast vel með hvernig framvinda verður í námi barnsins.