Við stefnum með 9...
Við stefnum með 9. og 6. bekk í skólabúðir
vikuna 11. -15. febrúar.
6. bekkur fer í Kiðagil í Bárðardal 11. og 12. febrúar með
umsjónarkennurum sínum, þeim Magnúsi og Pálma. Viðamikil dagskrá verður fyrir nemendur í Bárðardal, má nefna
stuttmyndagerð, staðbundinn ratleik, heimsókn á sveitabæ, kvöldvöku o.m.fl.. Hægt verður að fylgjast með hópnum á
heimasíðu 6.bekkja.
Nemendur 9. bekkja verða í skólabúðum að Laugum í Dalasýslu vikuna
11. -15. febrúar. Fararstjórar verða Halla Rún umsjónarkennari, Halldór skólastjóri og Dómhildur húsvörður. Þetta er
í þriðja skiptið sem nemendur 9. bekkjar Borgarhólsskóla fara að Laugum. Nemendur frá Hofsósi , Snæfellsbæ og Korpuskóla dvelja
með okkur. Meðan á dvölinni stendur fá nemendur mjög fjölbreytt nám og skemmtun af ýmsu tagi. Má
nefna félagsmálakennslu, námskeið sem nefnist ,,flott án fíknar“, heimsóknir á tvo sveitabæi í Dölum, farið
í landnámsskálann á Eiríksstöðum, setið við langeld og hlustað á sagnamann segja sögu Eiríks, gengið á
Tungustapa, fjallað stuttlega um sagnaslóðir Laxdælu og viðamiklar kvöldvökur svo fátt eitt sé upp talið. Hægt verður að
lesa dagbækur ,,blaðamanna“ hópsins á heimasíðu skólans meðan á dvölinni stendur.
Mikilvægt markmið með skólabúðaferð er líka að efla nemendur
félagslega og auka hamingju þeirra.
HV