Endurgreiðslustyrkir hins opinbera vegna tannlækninga hafa dregist saman undanfarin ár...
Endurgreiðslustyrkir hins opinbera vegna tannlækninga hafa dregist saman undanfarin ár. Þrátt fyrir það
hyggjast tannlæknar á Húsavík halda áfram þeim skólatannlækningum sem hér hafa tíðkast. Þær hafa
verið með því sniði að nemendur eru kallaðir úr skóla í skoðun og greiningu, skráningu, röntgenmyndatöku,
flúorlökkun og skorufyllur . Sé frekari meðferðar þörf, er haft samband við foreldra eða gefinn tími utan skólatíma. Mikilvægt
er, að þeir foreldrar /forráðamenn sem EKKI vilja nýta sér innköllunarkerfi tannlæknastofunnar á Húsavík láti vita á
tannlæknastofunni í síma 464-0990.
Athugið, að foreldrar/forráðamenn greiða mismuninn á styrk TR vegna
tannlæknakostnaðar og raunkostnaði samkvæmt gjaldskrá tannlækna. Nemendur 1. og 2. bekkjar eru ekki kallaðir inn úr skóla samkvæmt
ofanskráðu sem og nemendur 10. bekkjar. Tannlæknastofan mun kalla þesa nemendur inn eða foreldrar hafa samband við tannlækanstofuna. Allir sem koma
úr skóla á tannlæknastofuna fá í hendur yfirlitsblað með helstu niðurstöðum skoðunar.
Vakni einhverjar spurningar vegna þessa þá er velkomið að hafa samband við
starfsfólk Tannlæknastofunnar
Starfsfólk
Tannlæknastofunnar Húsavík