- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Foreldraverðlauna Heimila og skóla fyrir árið 2013. Skólafólk og foreldrar sem vita um metnaðarfullt foreldrastarf
sem eflt hefur samstarf foreldra, nemenda og skólafólks og stuðlað að jákvæðum samskiptum heimilis og skóla eru hvött til að láta vita af því.
Hægt er að tilnefna verkefni hér: http://www.heimiliogskoli.is/2013/02/foreldraverdlaunin-2013/
Markmið Foreldraverðlauna Heimilis og skóla er að vekja athygli á því gróskumikla starfi sem fer fram innan leik-, grunn og framhaldsskóla, og þeim
mörgu verkefnum sem stuðla að öflugu og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins.
Foreldraverðlaun eru veitt til eins verkefnis/viðfangsefnis. Ef dómnefnd hefur þótt ástæða til, hafa jafnframt verið veitt sérstök hvatningar- eða
dugnaðarforkaverðlaun. Ekki er þó hægt að tilnefna dugnaðarfork eða tilnefna aðila til hvatningarverðlauna.
Heimili og skóli landssamtök foreldra standa fyrir Foreldraverðlaunum en samtökin sjálf, stjórn eða starfsfólk tilnefna ekki verkefni, heldur vinnur
dómnefnd úr innsendum tilnefningum. Niðurstöður dómnefndar byggjast á greinargerðum og rökstuðningi þeirra aðila sem tilnefndu.
Vakin er athygli á að verðlaun eru aðeins veitt til verkefnis/viðfangsefnis sem tilnefnt hefur verið með formlegum hætti á rafrænu eyðublaði á vefsvæði
landssamtakanna.
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |