Frá unglingadeildinni Náttfara

Unglingadeild björgunnarsveitarinnar Garðars heitir Náttfari og er mjög virk, hún er starftækt fyrir unglinga og aðeins dugnaðarforkar geta tekist á við verkefni sem við í unglingadeildinni tökum okkur fyrir hendur.

Veturinn hefur byrjað af krafti, við höfum lært á ýmisskonar tækjabúnað svo sem áttavita, gps tæki og lært nokkra hnúta. Okkur gafst einnig tækifæri til að fara með unglingadeildinni á Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði upp á Reykjaheiði þar sem við skemmtum okkur konunglega. Þar fórum við í hellaskoðun,  sig, klifur og ýmsa samskiptaleiki auk þess að koma við í Þeistareykjaskála og borða nesti.  Við enduðum svo daginn á að fara í sund í Heiðarbæ og á pítsuhlaðborð á Sölku.

Núna á næstunni ætlum við að kynna okkur lögreglu, slökkvilið og sjúkrabíla sem eru helstu samstarfsaðilar björgunarsveitarinnar.
Hvetjum við alla til að kynna sér starfssemi  björgunarsveitarinnar nánar.

10. bekkingar í Náttfara.

Athugasemdir