- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
Geðlestin, geðfræðsla fyrir nemendur í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla kom við í skólanum okkar í morgun. Um er að ræða samstarfsverkefni Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins 1717 sem er ætlað að vekja athygli á mikilvægi geðheilsu og verndandi þáttum hennar. Markmiðið með Geðlestinni er að ræða við ungt fólk um geðheilsu og hvernig best sé að rækta hana og vernda.
Hver heimsókn fer þannig fram að fyrst varr sýnt myndband, þá sagði ungur einstaklingur frá sinni persónulegu reynslu af geðrænum áskorunum, eftir það voru umræður í gegnum netið og í lokin var stutt tónlistaratriði. Það var mikil stemning í Salnum svo þakið ætlaði af húsinu. Geðlestin er styrkt af félagsmála- og heilbrigðisráðuneytum.
Það er mikilvægt að læra að stundum er lífið leiðinlegt og erfitt og það þurfi ekki alltaf að þýða eitthvað alvarlegt eða slæmt. Mótvindur verður skyndilega meðvindur og engin brekka er endalaus.
Það á að vera jafn eðlilegt að huga að geðheilsu sinni eins og líkamlegri heilsu. Það er hægt að gera með því að koma sér upp heilbrigðum venjum, líkt og að iðka þakklæti, eiga sér áhugamál, hreyfa sig, borða hollt, fá nægan svefn, treysta, eiga góða vini, rækta með sér seiglu og þrautseigju, vera umburðarlynd(ur), hjálpa öðrum, sýna tillitssemi, tjá sig svo fátt eitt sé nefnt.
Fræðsla eins og þessi þar sem einstaklingur segir frá lífsreynslu sinni getur kallað fram viðbrögð hjá þeim sem hlusta og því er mikilvægt að forráðamenn séu meðvitaðir og ræði við börn sín að fræðslunni lokinni. Það er einnig mikilvægt að kennarar og aðrir starfsmenn skóla fylgist með viðbrögðum nemenda í kjölfarið.
Heimasíða verkefnisins er www.gedlestin.is en þar er að finna hin ýmsu verkfæri til geðfræðslu. Við þökkum lestinni fyrir komuna.
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |