Göngudagur, 7.september

Hinn árlegi göngudagur skólans er miðvikudaginn 7. september ef veður leyfir.

Hinn árlegi göngudagur skólans er miðvikudaginn 7. september ef veður leyfir. Farnar verða hinar ýmsu leiðir í nágrenni okkar allt eftir aldri og getu. Má þar nefna skóginn, Lónin við Kaldbakskot, Húsavíkurfjall og Jökulsárgljúfur. Markmið með ferðum sem þessum er m.a.

  • Að njóta samveru
  • Að brjóta upp „hefðbundinn“ kennsludag
  • Að stuðla að hreyfingu
  • Að efla þekkingu nemenda á umhverfinu

Athugasemdir