Íslandsmót Barnaskólasveita í skák

Skáksveit Borgarhólsskóla varð í 18...
Skáksveit Borgarhólsskóla varð í 18. sæti með 17,5 vinninga á Íslandsmóti barnaskólasveita sem fram fór í Vetrargarðinum í Smáralind sunnudaginn 21.03.10.
Eftir 3 umferðir var liðið í 2-3 sæti eftir 3 sigra í röð, geng ma. A-sveit Laugalækjaskóla 3-1 
Í 4. umferð voru andstæðingarnir A-sveit Rimaskóla og tapaðist sú viðureign 0-4, en það var einmitt A-sveit Rimaskóla sem stóð uppi sem sigurvegari á mótinu.
Árangur okkar manna:
Snorri Hallgrímsson             4,5 af 8 mögul.
Hlynur Snær Viðarsson        4
Valur Heiðar Einarsson         5
Ágúst Már Gunnlaugsson      4
 
 
Strákarnir úr Borgarhólsskóla voru í 10. sæti fyrir síðustu umferðina en töpuðu stórt fyrir A-sveit Salaskóla í síðustu umferð og féllu við það tap niður í 18. sætið.  A-lið Salaskóla náði í 3 sætið í mótinu eftir þennan sigur á okkar mönnum.
Alls tóku 51 lið þátt í mótinu að þessu sinni sem er metþáttaka. Tefldar voru 8. umferðir og var umhugsunartíminn 10 mín á mann. Einungis 3 skólar af landsbyggðinni sendu lið til keppni, en eitt lið frá Brekkuskóla á Akureyri og eitt lið úr Grunnskóla Vestmannaeyja kepptu á mótinu auk Borgarhólsskóla.

Athugasemdir