- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
Undanfarin ár hafa nokkrar ömmur komið reglulega í heimsókn í skólann ýmist til að lesa fyrir nemendur eða hlýða á lestur nemenda. Það hefur fjölgað í þeim góða hópi og nú koma lestrarafar einnig í heimsókn. Því er talað um lestrarvini skólans.
Þetta er sjálfboðaliðastarf og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir, segir Þórgunnur skólastjóri og bætir við að þetta sé aukin þjónusta við nemendur. Þetta eru sem áður þær Helga Þórarinsdóttir, Lilja Sigurðardóttir og Rannveig Benediktsdóttir. Þau hafa nú bæst í hópinn, Hafliði Jósteinsson, Kristjana Stefánsdóttir og Sigurlína Jónsdóttir.
Hópurinn kemur tvisvar í viku og hlustar og les fyrir nemendur í fyrsta til sjöunda bekk. Skólinn er ákaflega þakklátur þessum hópi fyrir að gefa tíma sinn í þágu barnanna.
Hafliði og Helga hlusta og spjalla við nemendur
Sigurlína fer yfir heimalesturinn
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |