Skólamót í skák

Skólamótið í skák í Borgarhólsskóla á Húsavík fór fram á þriðjudag undir stjórn Goðans. Hlynur Snær Viðarsson vann sigur í eldri flokki og Snorri Hallgrímsson varð í öðru sæti. Björn Gunnar Jónsson vann sigur í yngri flokki, Bergþór Snær Birkisson varð í öðru sæti og Páll Svavarsson varð í þriðja sæti. Hlynur, Snorri, Björn, Bergþór og Páll hafa því unnið sér keppnisrétt á sýslumótinu í skólaskák sem verður haldið í Litlulaugaskóla í Reykjadal þriðjudaginn 24 apríl nk.

Athugasemdir