- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
Valgreinar eru hluti af skyldunámi. Í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla skal nemendum gefinn kostur á að velja námsgreinar og námssvið sem svarar allt að þriðjungi námstímans.
Tilgangurinn með valfrelsi nemenda á unglingsstigi er að laga námið sem mest að þörfum einstaklingsins og gera hverjum og einum kleift að leggja eigin áherslur í námi miðað við áhugasvið og framtíðaráform í samvinnu við foreldra , kennara og námsráðgjafa. Val í námi skal miða að skipulegum undirbúningi fyrir nám í framhaldsskóla og taka mið af undirbúningi fyrir bóknám, starfsmenntun, list- og tækninám.
Borgarhólsskóli býður nemendum að velja á milli 22 valmöguleika; allt frá leirgerð, snyrtifræði, Cross-fit eða starfa í leikskólanum Grænuvöllum og svo margt fleira spennandi og skemmtilegt. Tónlistarnám og íþróttaæfingar hjá viðurkenndum aðilum með skipulegum hætti flokkast hvort um sig sem einn valkostur. Jafnframt geta nemendur fengið hvers konar félagsstörf metin sem valgrein, s.s. sæti í nemendaráði, árshátíðarnefnd eða fjáröflunarnefnd 10. bekkjar. Hér má finna stutta lýsingu um hverja skylduvalgrein.
Hver nemandi þarf að hafa 3 valgreinar eða valkosti og velja a.m.k. eina list- og verkgrein.
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |