Þriðjudaginn 2...
Þriðjudaginn 2. október efnir skólinn til gönguferðar yfir Tunguheiði. Við höfum það á dagskrá
okkar að nemendur 8. bekkjar gangi þessa leið á hverju hausti.
Tunguheiði er fjallvegur sem mikið var farinn áður fyrr og er milli Tjörness og Kelduhverfis. Gengið er frá
Syðritungu á Tjörnesi og komið niður í Fjöll í Kelduhverfi.
Göngufólk þarf að vera í skjólgóðum göngufötum og í góðum skóm. Gott
er að hafa göngustafi, léttan bakboka og mikið og hollt nesti til dagsins. Við gerum ráð fyrir því að vera a.m.k. 5 -6
klukkutíma á göngu á misjöfnu landi.
Þetta er falleg leið, við höfum það sem markmið að njóta samverunnar á fjöllum, fræðast og
tengjast landinu. Farið verður mjög rólega enda heiðin sennilega dálítið blaut og seinfarin á köflum.
Ef nemendur af einhverjum ástæðum treysta sér ekki í ferðina þurfa þeir að ræða það við
umsjónarkennara sinn og þá verður þeim séð fyrir verkefnum undir stjórn kennara í skólanum. Umsjónarkennarar skrá í
ferðina mánudaginn 1. október.
Til að spara ferðakostnað óskum við eftir því að forráðamenn aki nemendum út í Syðritungu kl.
8:15 á þriðjudagsmorgun en rúta sækir okkur í Fjöll. Þeir sem ekki hafa tök á því að aka börnum sínum, eða
koma þeim með öðrum, hafi samband við umsjónarkennar.
Foreldrar, afar og ömmur eru velkomin með, ef pláss er í rútunni, og þurfa að tilkynna þátttöku til
umsjónarkennara, Sigrúnar(sigrun@borgarholsskoli.is) og Ödu (ada@borgarholsskoli.is), á mánudag.
Mætum út í Syðritungu vel útbúin kl. 8:15 á þriðjudagsmorguninn.
Þeir sem ganga Tunguheiði fá viðurkenningarskjal í skólanum síðar.
Skólastjóri