Tvöfaldir sigurvegarar

Nemendur skólans komu sáu og sigruðu í söngvakeppni félagsmiðstöðva á Sauðárkróki um helgina...
Nemendur skólans komu sáu og sigruðu í söngvakeppni félagsmiðstöðva á Sauðárkróki um helgina. Það voru þau Ílóna, Ármann og Auðbjörg sem kepptu fyrir Félagsmiðstöðina Kelduna. Þau fluttu lagið Svört sól og stóðu sig gríðarlega vel.  Keppnin var hörð og  mikið af flottum atriðum. Aðeins fimm keppendur komust áfram af þeim 17 sem tóku þátt. Þeir munu síðan spreyta sig í lokakeppninni sem haldin verður í Reykjavík í byrjun mars.
 Gaman er að segja frá því að Félagsmiðstöðin Keldan kom ekki bara heim með sigurlagið heldur einnig með verðlaunagrip fyrir bestu framkomuna. Frábær stemning var í hópnum og mikil samstaða þegar kom að því að hvetja sína félagsmiðstöð. Strákar úr úr 9. og 10. bekk voru einnig með magnað skemmtiatriði. Þeir sýndu strákadansinn úr leiksýningunni “Hvort er ég barn eða fullorðinn?” við afar góðar undirtektir.

Athugasemdir