- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í liðinni viku í Safnahúsinu á Húsavík. Sjö sjöundu bekkingar skólans komu saman og fluttu mál sitt fyrir gesti. Stóra upplestrarkeppnin fyrir 7. bekk hófst veturinn 1996 - 1997 með þátttöku 223 barna í Hafnarfirði og á Álftanesi. Sex árum síðar voru börnin 4579 úr 151 skóla hringinn í kringum landið. Upplestrarkeppnin er ekki „keppni‟ í neinum venjulegum skilningi heldur þróunarverkefni. Höfuðáherslan er lögð á bekkjarstarfið og að allir nemendur njóti góðs af.
Í fyrstu umferð voru lesnar Svipmyndir úr skáldsögunni Öðruvísi fjölskylda eftir Guðrúnu Helgadóttur, í annarri umferð voru lesin ljóð eftir Anton Helga Jónsson og í þeirri þriðju lásu nemendur ljóð að eigin vali. Það vakti athygli og gleði að áheyrendur fengu að hlýða á ljóðalestur á pólsku. Einnig fengu gestir að hlýða jólalög frá nemendum Tónlistarskóla Húsavíkur
Í fyrsta sæti var Brynjúlfur Nóri Ólason, í öðru sæti var Svavar Marteinsson og þriðja sæti skipaði Tómas Orri Stefánsson.
Sparisjóður Suður-Þingeyinga er helsti styrktaraðili keppninnar og þökkum við þeim kærlega fyrir samstarfið. Sömuleiðis Safnahúsinu á Húsavík. Öll sem lásu fengu bókagjöf frá skólanum, Rétt áðan eftir Illuga Jökulsson og viðurkenningarskjal. Fyrir verðlaunasæti hlutu nemendur peningagjöf.
Það eru sterk tengsl milli orðaforða og lesskilnings. Ein árangursríkasta leiðin til að efla orðaforða barna, og þar með málskilning, er aukinn bóklestur. Að tala við börnin okkar og lesa fyrir börnin okkar. Það er skammgóður vermir að nýta sér rafrænt afþreyingarefni til að skapa ró eða til að kveikja áhuga sem fer oft og gjarnan fram á ensku. Íslenskan er undirstaðan, saga okkar og menning, hið talaða mál með öllum sínum fögru hljóðum, sérkennum og framburði.
Vanalega fer hátíðin fram með hækkandi sól á vordögum en við gerum nú þá breytingu að halda keppnina í tengslum við dag íslenskrar tungu sem er í nóvember. Sömuleiðis að létta á nemendum á vordögum í tengslum við skólasamkomu.
Við þökkum öllum lesurum og áheyrendum kærlega fyrir hátíðina enda er mikill sigur að koma fram og lesa fyrir fullum sal af fólki.
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |