Verkstæðisdagur fyrir jólin hefur verið haldinn með svipuðu sniði í skólanum frá 1987 og er einn af stóru dögunum í skólalífinu...
Verkstæðisdagur fyrir jólin hefur verið haldinn með svipuðu
sniði í skólanum frá 1987 og er einn af stóru dögunum í skólalífinu. Að þessu sinni , föstudaginn 5. desember,
var óvenju mikið lagt í daginn þó með þeim hætti að flest sem menn tóku sér fyrir hendur á verkstæðunum
var framleitt úr afgangs og ódýru efni en hugmyndaflugið og sköpunarkrafturinn réði viðfangsefnum að mestu leyti. Notaður var
afgangspappír, trjágreinar, niðursagaður trjáviður af skólalóðinni, glerkrukkur, slitnar skeifur og allt mögulegt sem afgangs er á
heimilum og í skólanum. 23 jólaverkstæði voru starfrækt og mátti sjá marga efnilega og slynga handverksmenn á öllum aldri
hjálpast að við að gera eigulega hluti. Starfsmenn skólans, nemendur og foreldrar leiðbeindu á hverju verkstæði.
Á þessum degi hafa allir frjálsa för um skólann og sjá mátti
gleði í andlitum. Nemendur Tónlistarskólans spiluðu jólalögin viðstöðulítið á Stjörnu, Mána og í
salnum, eins söng Sólarkórinn úr 2. bekk í salnum þar sem nemendur 10. bekkjar seldu veitingar á vægu verði.
Nemendur 8. bekkjar undir stjórn Ingólfs heimilisfræðikennara sýndu
piparkökuþorp í heimilisfræðistofunni og gaf Bókaverslun Þórarins Stefánssonar húsbyggjendum sem sköruðu fram úr
verðlaun.
Að venju kom gríðarlegur fjöldi gesta í heimsókn þennan
morgun.
HV