19...
19. janúar s.l. komu forráðamenn í skólann með börnum sínum og fóru yfir námsmat haustannar
með umsjónarkennurum. Vert er að minna á það að námsmatið er ekki dómur heldur eingöngu gert til að foreldrar, nemendur og kennarar
glöggvi sig á stöðunni og stilli saman strengi sína í þeirri viðleitni að gera betur. Með því hugarfari eflum við nemendur
best til dáða.
Foreldrar geta gengið að námsáætlun vorannar í Mentor. Upplýsingar fyrir foreldra um námsgengi,
stundvísi o.fl. eiga líka að vera aðgengilegar í Mentor. Ef foreldrar hafa ekki aðgangsorð að Mentor þurfa þeir að gera
umsjónarkennara viðvart sem sendir þeim nýtt.
Á haustönn voru 250 nemendur af 330 að jafnaði í skólamötuneytinu. Samkvæmt samningi við Fosshótel er
umsamið matarverð reiknað tvisvar á ári samkvæmt vísitölu þ.e. 1. ágúst og 1. janúar. Náðst hefur samkomuleg við
Fosshótel um að verðbreyting verði að þessu sinni 1. febrúar og ný verðskrá gefin þá út.
Í skólanum hefur jafnan verið reynt að sýna ráðdeild í rekstri og svo verður áfram. Ný
fjárhagsáætlun er í vinnslu hjá sveitarfélaginu og munu ráðamenn örugglega beita sér af alefli að því að
skerða þjónustu skólans sem minnst á þessum erfiðu tímum. Í upphafi árs höfum við í skólanum þegar gert
áætlun um ýmsar sparnaðarleiðir. Í forföllum má búast við því að einstaka sinnum verði tímar felldir
niður hjá eldri nemendum eða þeim fundin önnur verkefni. Það er því mikilvægt að hvetja nemendur til að vinna
sjálfstætt þegar tímar falla tímabundið niður því oftast hafa þeir góðan aðgang að skólasafninu og
annarri vinnuaðstöðu í skólanum undir eftirliti starfsmanna skólans. Búast má við því að vinnutilhögun annarra
starfsmanna verði breytt tímabundið þegar styttri forföll verða.
Minna verður um skólastarf sem starfsmenn skólans stjórna utan dagvinnumarka á næstunni, má þar nefna
ferðalög, bekkjarkvöld og fundi á vegum skólans nema samkvæmt sérstöku samkomulagi við starfsmenn. Við þessar aðstæður
reynir á samstarf heimilis og skóla. Foreldrar og starfsmenn þurfa að sýna velvild og skilning á aðstæðunum til að halda úti
góðu samstarfi sín á milli og efla það eftir mætti, ekki síst nú á þrengingartímum því margt gott
má gera sem ekki kostar peninga.
Áfram starfar félagsmiðstöðin Keldan af krafti fyrir nemendur í 8. – 10. bekk en nemendaráð
í samstarfi við umsjónarmenn Keldunnar drífur starfið áfram (http//keldan.nordurthing.is). Foreldrar eru hvattir til að gefa þessari
góðu starfsemi gaum og styðja hana eftir mætti.
Stefnt er að því að nemendur 7. og 10. bekkjar setji upp leikrit nú á vorönninni eins og jafnan áður og eru
æfingar þegar hafnar. Margt áhugavert er á döfinni í öllum bekkjum skólans og eru foreldrar hvattir til að vera í góðu sambandi
við kennara til að fá sem bestar upplýsingar.
HV