Vinningshafi í eldvarnargetraun

Grímur Kárason slökkviliðsstjóri afhendir Elmari Darra vinninginn.
Grímur Kárason slökkviliðsstjóri afhendir Elmari Darra vinninginn.

Á hverju hausti fara slökkviliðsmenn sveitarfélaganna í heimsókn í leikskóla og grunnskóla landsins og fræða börnin um eldvarnir. Börn hafa reynst vera öflugir forvarnafulltrúar heimila, þar sem þau hafa gjarnan rætt eldvarnamál við foreldra og forráðamenn sína í kjölfar fræðslu frá slökkviliðum og þannig leitt til yfirferðar á brunavörnum heimilanna.

Í dag var tilkynnt um vinningshafa í eldvarnargetraun sem fór fram síðastliðin haust en tíu nemendur eru dregnir út á landsvísu og hljóta vinning í formi inneignar hjá Spilavinum. Elmar Darri Hermannsson var dreginn út pottinum og hlaut viðurkenningarskjal og verðlaunin. Fulltrúar Slökkviliðis Norðurþings komu í heimsókn í dag og afhentu vinninginn. Til hamingju Elmar Darri.