Vísa vikunnar

Við, starfsmenn í Borgarhólsskóla, reynum oft að gera eitthvað skemmtilegt saman til þess að halda þeim góða anda sem ríkir í starfsmannhópnum.

Við, starfsmenn í Borgarhólsskóla, reynum oft að gera eitthvað skemmtilegt saman til þess að halda þeim góða anda sem ríkir í starfsmannhópnum. Við viljum deila með ykkur smá leik sem er í gangi hjá okkur.
Á mánudögum kemur upp vísnagáta á kaffistofunni og starfsmenn hafa svo vikuna til þess að finna orðið sem spurt er um. Þetta skapar skemmtilegar umræður á kaffistofunni. Svarið fáum við svo á föstudögum. 
Við ætlum að setja vísurnar inn á heimasíðuna okkar á mánudögum svo þið getið verið með. Svarið fáið þið svo á mánudeginum á eftir, þegar ný vísa kemur inn. 
Það er alltaf verið að spyrja um  EITT orð. Lausnarorð hverrar gátu er að jafnaði fólgið í hverri hendingu vísunnar, en í mismundandi merkingu.

Hér kemur svo fyrsta vísnagáta:

Sjómenn mega varast mest.
Margur sungið hefur.
Kemur, þegar sólin sest.
Sjá um gluggann gefur.

Góða skemmtun!


Athugasemdir