- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
Öskudagur er upphafsdagur lönguföstu, miðvikudagurinn í 7. viku fyrir páska. Dagsetning hans getur sveiflast á milli 4. febrúar til 10. mars. Að þessu sinni ber daginn upp á 10. febrúar næstkomandi.
Kennsla verður fram að hádegi samkvæmt stundaskrá þennan dag í skólanum. Að loknum hádegisverði hvetjum við nemendur til að fara saman í hópum í fyrirtæki og stofnanir, syngja og safna sér mæru. Jafnframt hvetjum við nemendur og starfsfólk til að koma í búningum í skólann á þessum skemmtilega degi.
Nemendur 6. bekkjar slá svo upp öskudagsballi í Íþróttahöllinni kl. 17:30 síðar um daginn. Þar verður kötturinn sleginn úr tunninni og dansað saman.
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |