Flateyjarferð

Silgt vestur í Flatey
Silgt vestur í Flatey
Borgarhólsskóli efnir til ferðar vestur í Flatey þriðjudaginn 3...
Borgarhólsskóli efnir til ferðar vestur í Flatey þriðjudaginn 3.október með nemendur í 8. 9. og 10. bekk. Farið verður af stað kl. 8:45 með skipum Norðursiglingar, Náttfara og Hauki og komið heim um nónbil.
 
Markmiðið með ferðinni er að unglingahópurinn og starfsmenn skólans gleðjist saman, fræðist, fái að upplifa ævintýri og eflist félagslega.
 
Um borð fá nemendur fræðslu m.a. um lífríki flóans, skipin, Náttfaravíkur, Víknafjöllin, Flatey o.fl.. Ef aðstæður verða góðar vindum við upp segl..
Allir þurfa að hafa með sér skjólföt og gott nesti.
 
 Þeir sem kaupa hádegismat af hótelinu umræddan dag fá sérstaka nestispakka með sér.
 
Nemendur mæti í stofur sínar kl. 8,15 þar sem kennarar taka manntal og lokaákvörðun verður tekin með tilliti til sjóveðurs.
 
 Ferðin kostar kr. 1000. Umsjónarkennarar taka við greiðslu við skráningu kl. 8:15. 
Skólinn niðurgreiðir hluta ferðakostnaðar. Þeir nemendur sem ekki vilja taka þátt í ferðinni mæta í skólann og fá aðstöðu til að vinna skólaverkefni undir stjórn kennara.
 
Munið að vera vel búin og nestið þarf að vera ósvikið.
 
Skólastjóri

Athugasemdir