Frá aðalfundi Foreldrafélags skólans

F.v. Jóna Dagmar, Steinunn, Rakel Dögg, Hildur Eva, Aðalgeir Sævar og Guðmundur.
F.v. Jóna Dagmar, Steinunn, Rakel Dögg, Hildur Eva, Aðalgeir Sævar og Guðmundur.

Sterkustu bandamenn skóla eru foreldrar. Aðalfundur foreldrafélags skólans fór fram í gær. Stjórn félagins kynnti starfsemi þess, rætt var um leiðir til að efla foreldrasamfélagið og leiðir til að styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu.

Skipað var í nýja stjórn félagsins en þau Aðalgeir Sævar Óskarsson, Guðmundur Friðbjarnarson, Hildur Eva Guðmundsdóttir, Jóna Dagmar Hólmfríðardóttir, Rakel Dögg Hafliðadóttir og Steinunn Jónsdóttir. Stjórn skiptir með sér verkum og sömuleiðis skipar hún í skólaráð skólans. Farið var yfir reikninga félagsins og þeir samþykktir. Rætt um hvernig efla megi starfsemi félagsins, sérstaklega meðal nýrra foreldra. Sömuleiðis rætt um skólalóðina og umferðaröryggi við og kringum lóðin. Þá var umræða um morgunverð á skólatíma en fyrir nokkru var boðið upp á hafragraut að morgni. Sú þjónusta var mjög lítið nýtt og henni hætt. Þau sem vilja koma ábendingum á framfæri er bent á tölvupóst félagsins, foreldrafelag(hjá)borgarholsskoli.is og facebook-síðu félagsins HÉR.