Fyrirlestur frá alnæmissamtökunum

Þriðjudaginn 9...
Þriðjudaginn 9. mars kom Heiðdís Jónsdóttir, fulltrúi frá alnæmissamtökunum á Íslandi og ræddi við nemendur á unglingastigi. Er þetta liður í forvarnarfræðslu alnæmissamtakanna.
Þar sem salurinn í Borgarhólsskóla var upptekinn var ákveðið að fara með nemendurna í gamla samkomuhúsið. Hún fræddi nemendur um ýmislegt sem tengist alnæmi eins og muninn á HIV og alnæmi. Hún sagði þeim einnig frá einkennum, smitleiðum og ýmsum fordómum sem hún hefur þurft sem HIV-smitaður einstaklingur að takast á við. Einnig ræddi hún um ástandið í Afríku þar sem fæstir hafa efni á lyfjum og heilu þorpin eru að þurrkast út. Hún ræddi líka um aðra kynsjúkdóma og forvarnir gegn þeim. Heiðdís færði nemendum bækling um kynsjúkdóma og einkenni þeirra. Kom fram í máli hennar að besta forvörnin er þó að tala opinskátt um sjúkdóminn og hættuna á smiti og að þeir sem eru smitaðir geti fordómalaust miðlað af reynslu sinni.
Að lokum svaraði hún nokkrum fyrirspurnum frá nemendum. Við þökkum Heiðdísi kærlega fyrir fræðsluna og bendum á heimasíðu samtakanna www.aids.is fyrir frekari upplýsingar um þetta mikilvæga málefni.
Kolbrún Ada

Athugasemdir