Iðjuþjálfar heimsækja grunnskólabörn og vigta skólatöskur

Iðjuþjálfafélag Íslands stendur fyrir Skólatöskudögum víðs vegar um landið dagana 24...
Iðjuþjálfafélag Íslands stendur fyrir Skólatöskudögum víðs vegar um landið dagana 24.-28. september sem bera yfirskriftina ,,Létta leiðin er rétta leiðin”. Skólatöskudagar eru haldnir af iðjuþjálfum um allan heim í september að bandarískri fyrirmynd. Um 50 íslenskir iðjuþjálfar auk iðjuþjálfanema við Háskólann á Akureyri, heimsækja um 40 grunnskóla víðsvegar um landið þessa daga. Þetta er annað árið sem félagið stendur fyrir þessum viðburði á landsvísu.
Hér hjá okkur í Borgarhólsskóla tökum við tvær vikur í skólatöskudaga, það er 24. september til 3. október. Við Iris iðjuþjálfi og Rósa nemi munum fara í 5. 8. 9. og 10. bekki.
 
Á Skólatöskudögum fræða iðjuþjálfar nemendur, foreldra og kennara um rétta notkun á skólatöskum. Nemendur fá að vigta skólatöskurnar sínar og reikna út hvort skólataskan sé af æskilegri þyngd miðað við þeirra eigin líkamsburði. Börnin fá einnig í hendurnar leiðbeiningar um hvernig taskan á að vera stillt, hvernig best sé að raða í hana og hvaða þætti er mikilvægt að horfa á þegar ný taska er keypt. Iðjuþjálfarnir munu auk þess veita almenna fræðslu um rétta líkamsbeitingu en stoðkerfisvandi barna og ungmenna er vaxandi vandamál og forvarnir geta bætt líðan þeirra.
 
Iðjuþjálfar vinna að því að styrkja einstaklinga í daglegum athöfnum svo frammistaða þeirra og þátttaka sé með sem bestu móti. Margir iðjuþjálfar starfa í tengslum við skóla hér á landi og styðja nemendur í daglegum athöfnum. Í skólum aðstoða iðjuþjálfar börn með víðtæka færnivanda svo sem varðandi skrift, þroska og hegðun.

Athugasemdir