Innritun í framhaldsnám

Skráning í framhaldsnám
Skráning í framhaldsnám
Forinnritun nemenda í 10. bekk (sem fæddir eru 2000 eða síðar) hefst föstudaginn 4. mars og lýkur sunnudaginn 10. apríl. Nemendur fá bréf frá Menntamálastofnun með veflykli sem gengur að innritunarvef og leiðbeiningum afhent í skólunum um leið og það berst. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá Menntamálastofnun með upplýsingum um innritunina. Nemendur í 10. bekk eru eindregið hvattir til að taka þátt í forinnrituninni.

Forinnritun í nemenda í 10. bekk í framhaldsnám hefst föstudaginn 4. mars næstkomandi og lýkur sunnudaginn 10. apríl. Nemendur fá bréf frá Menntamálastofnun með veflykli sem gengur að innritunarvef og leiðbeiningum afhent í skólunum um leið og það berst. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá Menntamálastofnun með upplýsingum um innritunina. Nemendur í 10. bekk eru eindregið hvattir til að taka þátt í forinnrituninni.

Rafræn innritun á starfsbrautir fyrir fatlaða stendur yfir. Stefnt er að afgreiðslu allra umsókna á starfsbrautir fyrir lok apríl. Lista yfir skóla sem bjóða upp á starfsbrautir fyrir fatlaða er að finna undir flipanum upplýsingar á vef Menntamálastofnunar.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 10. júní. Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum úr forinnritun til miðnættis föstudaginn 10. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 514 7500 eða með því að senda tölvupóst á netfangið  innritun@mms.is.

Kynningarmynd um innritun í framhaldsskóla má finna HÉR.


Athugasemdir