- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
Einn besti inniklifurveggur landsins er í gömlu síldarverksmiðjunni á Hjalteyri við Eyjafjörð. Frá því að á Hjalteyri var byggð stærsta síldarverksmiðja Evrópu árið 1937 hefur hlutverk þess húsnæðis tekið miklum breytingum. Þar er nú stórt sýningarrými fyrir listsýningar og aðra viðburði, köfunarskóli og það nýjasta, kraftlyftinga og klifuraðstaða.
Klifur snýst að miklu leyti um klifurþrautir. Við bjóðum upp á klifur sem skylduvalgrein á unglingastigi. Það er klifurveggur í Íþróttahöllinni á Húsavík en í lok skólaárs er boðið upp á meira krefjandi verkefni. Klifurhópurinn fór í heimsókn á Hjalteyri í vikunni til að klifra og leysa hverskonar þrautir. Ferðin var hin skemmtilegasta og verkefnið ærið.
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |