Kynningarfundur um nýtt námsmat

Útskrift úr 10. bekk kemur til með að breytast.
Útskrift úr 10. bekk kemur til með að breytast.
Skólastjórnendur boðuðu foreldra nemenda í 10. bekk á fund vegna breytts fyrirkomulags við útskrift úr grunnskóla. Eins og áður segir eru talsverðar breytingar fyrirhugaðar á námsmatsferlinu í grunnskóla og við útskrift samhliða breytingum á menntakerfi þjóðarinnar. Nemendur 10. bekkjar fá jafnframt sérstaka kynningu á málinu.

Skólastjórnendur boðuðu foreldra og nemendur í 10. bekk á fund vegna breytts fyrirkomulags við útskrift úr grunnskóla. Eins og áður segir eru talsverðar breytingar fyrirhugaðar á námsmatsferlinu í grunnskóla og við útskrift samhliða breytingum á menntakerfi þjóðarinnar. Nemendur 10. bekkjar fá jafnframt sérstaka kynningu á málinu.

Aðalnámskrá grunnskóla kom út 2011 og með greinasviðum 2013. Í aðalnámskrá eru skilgreindir hæfniþættir á hverju námssviði og innan hverrar námsgreinar. Samkvæmt aðalnámskrá eiga nemendur að fá tækifæri til að uppfylla hæfniviðmið einstakra námsgreina og námssviða með mismunandi hætti. Á vefsíðu Menntamálastofnunar má finna nánari upplýsingar um breytingarnar.

HÉR má finna kynningarefni um breytinguna frá Menntamálastofnun.

HÉR má finna kynningarefnið sem skólastjóri fór yfir á fundinum.


Athugasemdir