Sigur í spurningakeppni grunnskóla Suður Þingeyjarsýslu

Davíð Helgi, Hlöðver og Ármann með bikarinn
Davíð Helgi, Hlöðver og Ármann með bikarinn
Framhaldsskólinn á Húsavík stóð fyrir fyrstu spurningakeppni grunnskólanna í Suður Þingeyjarsýslu s...
Framhaldsskólinn á Húsavík stóð fyrir fyrstu spurningakeppni grunnskólanna í Suður Þingeyjarsýslu s.l. föstudag. Borgarhólsskóli sendi tvö blönduð lið nemenda úr 8., 9. og 10. bekk. Lið A var skipað þeim Brynjari úr 8. bekk, Anítu úr 9. bekk og Sigga Hreiðars. úr 10. bekk. Lið B var skipað þeim Hlöðveri úr 8. bekk, Davíð Helga úr 9. bekk og Ármanni úr 10. bekk. Svo óheppilega vildi til að liðin okkar drógust hvort gegn öðru í fyrstu umferð og bar lið B sigur úr býtum og lið A var því úr leik. Lið B sigraði næst lið Öxarfjarðarskóla og var þar með komið í úrslit keppninnar. Þar mættu okkar menn Mývetningum og höfðu betur, 16-14. Hlaut liðið að launum veglegan farandbikar auk þess sem keppendur fengu að gjöf nýja útgáfu Trivial Pursuit spurningaspilsins.
Til hamingju með þetta piltar!
J. H.

Athugasemdir