Skráning í mötuneytisþjónustu

Foreldrar þurfa að skrá börn sín í mötuneytisþjónustu kjósi þeir að nýta sér hana. Þjónustan er gjaldfrjáls. Vegna framkvæmda í eldhúsi skólans hefst þjónustan þann 26. ágúst nk. En í næstu viku verður settur upp nýr kælir til að bæta aðstöðuna.

Við minnum á að Borgarhólsskóli er hnetulaus skóli og sömuleiðis appelsínu- og mandarínulaus. Fyrstu skóladaga þurfa foreldrar að nesta börn sín og sjá til þess að þau fái holla og góða næringu.