Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Lesarar dagsins í dag
Lesarar dagsins í dag
Í dag fór fram undankeppni skólans vegna Stóru upplestrarkeppninnar. Verkefnið sjálft hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember. Tíu nemendur 7. bekkjar öttu kappi í upplestri en keppnin fór fram í Safnahúsinu á Húsavík. Það eru Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn sem standa fyrir keppninni á landsvísu en umsjón með verkefninu er í höndum skólaskrifstofa í hverju héraði.

Í dag fór fram undankeppni skólans vegna Stóru upplestrarkeppninnar. Verkefnið sjálft hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember. Tíu nemendur 7. bekkjar öttu kappi í upplestri en keppnin fór fram í Safnahúsinu á Húsavík. Það eru Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn sem standa fyrir keppninni á landsvísu en umsjón með verkefninu er í höndum skólaskrifstofa í hverju héraði. Nánari upplýsingar um keppnina má finna á heimasíðu Radda, http://upplestur.hafnarfjordur.is/

Markmið með upplestrarkeppni er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Keppnin sjálf er í rauninni aukaatriði og forðast skyldi að einblína á sigur. Mestu skiptir að kennarar nýti þetta tækifæri til að leggja markvissa rækt við einn þátt móðurmálsins með nemendum sínum, vandaðan upplestur og framburð, og fái alla nemendur til að lesa upp, sjálfum sér og öðrum til ánægju. Stefnt skyldi að því að allur upplestur í tengslum við keppnina sé fremur í ætt við hátíð en keppni.

Á hátíðinni í dag voru lesarar þau, Almar Hannes Hafsteinsson, Elín Anna Óladóttir, Elísa Rafnsdóttir, Hjördís Óskarsdóttir, Jóhannes Óli Sveinsson, Lára Hlín Svavarsdóttir, Mikael Frans Víðisson, Sandra Björk Kristjánsdóttir, Thelma Dís Heimisdóttir og Þorri Gunnarsson. Elín Anna spilaði á píanó fyrir gesti og lesara í upphaf keppninnar.

Fulltrúar skólans í lokakeppninni sem fram fer 7. apríl næstkomandi verða þau Elín Anna, Elísa, Lára Hlín og Mikael Frans.


Athugasemdir