Veðurspá og skólahald

Veðurútlit morgundagsins
Veðurútlit morgundagsins
„Norðaustan og norðan 15-23 m/s, hvassast SA-lands, en norðan 18-23 á morgun. Hvessir talsvert um tíma á SA-landi í nótt. Snjókoma eða éljagangur N- og A-lands og bætir verulega í ofankomu N-lands á morgen‟. Svona hljóðar veðurspá morgundagsins og haft er eftir veðurfræðingu á Veðurstofu Íslands að það verði einfaldlega blindbylur um allt norðanvert landið á morgen, fimmtudag. Það mun vara framundir aðfararnótt laugardags.

„Norðaustan og norðan 15-23 m/s, hvassast SA-lands, en norðan 18-23 á morgun. Hvessir talsvert um tíma á SA-landi í nótt. Snjókoma eða éljagangur N- og A-lands og bætir verulega í ofankomu N-lands á morgun‟. Svona hljóðar veðurspá morgundagsins og haft er eftir veðurfræðingu á Veðurstofu Íslands að það verði einfaldlega blindbylur um allt norðanvert landið á morgun, fimmtudag. Það mun vara framundir aðfararnótt laugardags.

Skólahaldi er öllu jafna ekki aflýst nema í verstu veðrum og þá með tilkynningu á heimasíðu skólans og í útvarpi. Veðurráð Borgarhólsskóla mætir í skólann hvernig sem viðrar og er tengiliður skólans við foreldra. Skelli á vont veður meðan börnin eru í skólanum eru foreldrar beðnir um að sjá til þess að þau verði sótt eins fljótt og auðið er eftir að skóla lýkur.

Hlutverk veðurráðs:

 

  • Opnar skólann fyrir nemendum
  • Gerir viðeigandi ráðstafanir gagnvart nemendum
  • Er tengiliður skóla við foreldra
  • Svarar í símann

 

Veðurráð skipa;

 

  • Sveinn húsvörður, 892-8533
  • Halla Rún, 863-4178
  • Pálmi, 892-1628

 

 

Fyrir áhugafólk um veður bendum við á eftirfarandi heimasíður til að fylgjast með veðrinu;

www.windy.tv

www.earth.nullschool.net

www.belgingur.is

Yfir Grænlandi er víðáttumikil 1042 mb hæð, en skammt NA af Hjaltlandseyjum er kröpp 977 mb lægð, sem þokast NNV og dýpkar sem veldur þessu veðri.


Athugasemdir