Afrónámskeið

Í dag og næstu daga dillum við okkur við ljúfa tóna sem berast úr öllum áttum í skólanum því það stendur yfir Afrónámskeið í tónlistarskólanum.

Í dag og næstu daga dillum við okkur við ljúfa tóna sem berast úr öllum áttum í skólanum því það stendur yfir Afrónámskeið í tónlistarskólanum. Nemendur úr 4. og 5. bekk eru þátttakendur á námskeiðinu og einnig marimbakennarar tónlistarskólans en þeir sáu um að skipuleggja námskeiðið. Gestakennarar frá Svíþjóð og Noregi leiða kennsluna.

Gestakennarar verða með tónleika föstudaginn 14. sept. kl. 20:00 í sal Borgarhólsskóla. Einnig munu þátttakendur námskeiðsins verða með tónleika í sal Borgarhólsskóla laugardaginn 15. sept. kl. 14:00.

Enginn aðgangseyrir verður á þessa tónleika og það eru allir hjartanlega velkomnir!

Myndir má sjá hér.


Athugasemdir