Árshátíð unglingadeilda

Árshátíð unglingadeilda Borgarhólsskóla var haldin föstudagskvöldið 26...
Árshátíð unglingadeilda Borgarhólsskóla var haldin föstudagskvöldið 26. nóvember. Undirbúningur hefur staðið yfir síðan snemma í haust undir stjórn Unnars Þórs og Kristjönu Maríu. Að venju lagði árshátíðarnefnd skólans talsvert  í skreytingar á salnum og Erling Þorgrímsson var mættur til að hafa yfirumsjón með ljósum og öðrum tæknimálum. Við það vinna einnig nemendur í tæknivali skólans. Allar bekkjardeildir voru með skemmtiatriði sem tókust afar vel og  skemmtiatriði kennara  sló að sjálfsögðu í gegn. Ekki má gleyma Stjörnumessunni sem flestum finnst ómissandi. Þar eru nokkrir tilnefndir fyrir „ýmsa kosti“ og einn útvalinn.  Nemendur skemmtu sér hið besta og voru til fyrirmyndar í alla staði.

Athugasemdir