Benedikt Þór Norðurlandsmeistari í skák

Benedikt Þór Jóhannsson varð Norðurlandsmeistari í skák í flokki 13 – 15 ára...
Benedikt Þór Jóhannsson varð Norðurlandsmeistari í skák í flokki 13 – 15 ára.  Áður hafði hann sigrað í skólaskákmóti Borgarhólsskóla og síðar í héraðsmóti. Hann fékk 5,5 vinninga af 7 mögulegum og varð jafn Ulker Gasanova.  Þau háðu síðan einvígi um titilinn og hafði Benedikt sigur. Hann fékk farandbikar til varðveislu næsta árið og einnig eignabikar. 
Hlynur Snær Viðarsson varð í 1. sæti á héraðsmóti yngri skákmanna,  Valur Heiðar Einarsson í 2. sæti og Ágúst Már Gunnlaugsson í því 4. Þeir eru allir í 5. bekk í 6. stofu en mikill skákáhugi er í bekknum.
Óskum þessum efnilegu skákmönnum  til hamingju með góðan árangur og vonum að fleiri laðist að þessari hollu íþrótt sem skákfélagið Goðinn hefur hleypt lífi í upp á síðkastið.
 
HV

Athugasemdir