Farfuglarnir koma

Frá árinu 1991 hefur koma farfugla til Húsavíkur og nágrennis verið skráð í Borgarhólsskóla...

Frá árinu 1991 hefur koma farfugla til Húsavíkur og nágrennis verið skráð í Borgarhólsskóla.  Umsjón skráningar er í höndum skólasafnskennara og koma nemendur og starfsmenn skólans á safnið og skrá þar tegund fugls, komudag og stað sem fuglinn sást á. Skrá yfir komu farfuglanna ásamt myndum af helstu farfuglum er sett upp í bæði anddyri skólans en skráning fer fram á skólasafni. Þessi skemmtilegi siður hefur vakið áhuga margra nemenda á fuglum og gert þá að sérstökum áhugamönnum og sérfræðingum á þessu sviði.

20 apríl 2005 var opnaður formlega fuglavefur skólans, þar er að finna ýmsan fróðleik um fugla.

Skráning er hafin í skólanum!

Skoða fuglavef


Athugasemdir