Fjarnám í Borgarhólsskóla

Á undanförnum árum hefur fjarnám verið að sækja í sig veðrið sem vinsæll námsvettvangur og sífellt fleiri nemendur sækja í það til að afla sér aukinnar menntunar...
Á undanförnum árum hefur fjarnám verið að sækja í sig veðrið sem vinsæll námsvettvangur og sífellt fleiri nemendur sækja í það til að afla sér aukinnar menntunar. Fjarnám hefur verið stundað við Borgarhólsskóla í samstarfi við Verkmenntaskólann á Akureyri í nokkur ár. Í fyrstu voru þetta 1-2 nemendur sem höfðu búið erlendis í lengri eða skemmri tíma og vildu halda tungumálakunnáttu sinn við. Síðan þá hefur fjarnáminu vaxið fiskur um hrygg m.a. vegna breytinga á fyrirkomulegi samræmdra prófa, og hefur Fjölbrautaskólinn í Ármúla bæst í hópinn. Í dag eru 18 nemendur skráðir í fjarnám í dönsku, náttúrufræði, norsku, stærðfræði og þýsku. Auk þess er stór hópur nemenda skráður í framhaldsnám við Framhaldsskólann á Húsavík í íslensku, stærðfræði og ensku. Þessir áfangar eru kenndir hér við skólann.
Tilgangur fjarnámsins er m.a. að:
  • Koma til móts við nemendur sem lokið hafa samræmdu lokaprófi og hafa staðist þær kröfur sem gerðar eru í aðalnámskrá við lok grunnskóla í einstökum námsgreinum.
  • Koma til móts við nemendur sem sýnt hafa áhuga og getu til að takast á við ögrandi viðfangsefni.
  • Viðhalda og auka þekkingu nemenda í viðkomandi fagi.
 
Fjarnám er mjög krefjandi nám og þurfa námsmenn að vera sjálfstæðir og agaðir í vinnubrögðum til þess að standa sig. Því skiptir máli að skipuleggja sig í upphafi námsins, fara inn á kennsluvefinn á hverjum degi, prenta út kennsluáætlanir í viðkomandi fagi, ætla sér ákveðinn tíma við námið og standa skil á öllum verkefnum til þess að tryggja sér próftökurétt.

Fjarnámsnemendur hafa aðstöðu á bókasafni skólans og eru hvattir til að nýta sér aðstöðuna þar. Almennt má reikna með því að tíminn sem þarf til fjarnámsins í hverri viku sé um það bil sú tala sem út kemur þegar samtala valinna eininga er margfölduð með þremur. Vinna í STÆ 103 gæti því orðið 9 klst. á viku. Þetta þarf að hafa í huga þegar áfangar eru valdir.

AH.


Athugasemdir