Framkvæmdir

Í sumar hafa staðið yfir tölverðar framkvæmdir á lóð og í skólahúsinu...Framkvæmdir við Borgarhólsskóla.Í sumar hafa staðið yfir tölverðar framkvæmdir á lóð og í skólahúsinu. Svæðið norðan við salinn hefur verið malbikað og ný upphituð stétt lögð heim að skóla og nýjar tröppur gerðar við útidyrnar við salinn. Ný ljós hafa verið sett upp í gömlu forstofu og Stjörnu. Teppum var flett af Námsveri og gamli dúkurinn pússaður upp og er sem nýr. Töluverð málningavinna úti og inni. Húsgögn hafa verið keypt í listgreinastofur og skápar og hillur pantaðar í gömlu kennslustofurnar.  Einnig hefur verið unnið að unnið að endurnýjun á tölvukosti skólans.

Athugasemdir