Fyrirlestur um meðferð flugelda

Slysavarnardeild kvenna á Húsavík bauð nemendum og starfsmönnum unglingadeilda til samveru á sal þriðjudaginn 11...
Slysavarnardeild kvenna á Húsavík bauð nemendum og starfsmönnum unglingadeilda til samveru á sal þriðjudaginn 11. desember þar sem fræðslufulltrúi Landsbjargar, Pétur Bjarni Gíslason,  flutti fræðandi erindi um meðferð skotelda og blysa og hættuna sem stafar af þeim sé óvarlega farið. Í erindi sínu kenndi hann nemendum rétt handtök við meðferð skotelda og blysa og  fór yfir þau atriði sem valdið hafa slysum á undanförnum árum og sýndi myndir sem vöktu menn  til umhugsunar.
Fanney Óskarsdóttir og Freyja Eysteinsdóttir frá Slysavarnardeildinni afhentu skólanum við þetta tækifæri að gjöf tæki til að mæla hljóðstyrk.
Við í skólanum erum þakklát fyrir þá ræktarsemi sem Slysavarnardeildin sýnir skólanum og  nemendum hans.
 
HV

Athugasemdir