Heimsókn frá Hafralæk

Heimsókn frá Hafralæk
Heimsókn frá Hafralæk
Á þriðjudaginn í síðustu viku komu nemendur úr 1...
Á þriðjudaginn í síðustu viku komu nemendur úr 1. og 2. bekk í Hafralækjarskóla í heimsókn í 2. bekk í 23. stofu.  Þau komu um hálf ellefu og voru fram að hádegi.  Byrjað var á því að ganga með þau um skólann og sýna þeim hvar sérgreinastofurnar eru. Eftir það var farið í kennslustofuna  þar sem hver og einn gat valið hvað hann vildi gera, perla, lita, leira eða kubba. Endað svo á því að fara út í fótbolta og leiki.  Það var mjög gaman að fá þau í heimsókn, vonandi heldur þetta samstarf áfram næsta vetur.   Skoða myndir

Athugasemdir