Kennaranemar í 2. bekk

Nú er lokið vettvangsnámi kennaranema inn í 2...
Nú er lokið vettvangsnámi kennaranema inn í 2.bekk.  Það voru þær Anna Björg Leifsdóttir og Kristjana María Kristjánsdóttir sem voru i æfingakennslu yngri barna.  Þær eru báðar héðan frá Húsavík og fyrrverandi nemendur við skólann. 
Þær skipulögðu þema í tengslum við samfélagsfræðiefnið um bílinn.  Unnið var með bílinn út frá ýmsum sjónarhornum, kosti og galla bílsins, bensínverð, bíltegundir, mengun, bílabrautir byggðar, hannaður bær á veggspjald og fjallað um umferðarreglur.  Var þessi vinna samþætt öðrum námsgreinum s.s. íslensku, stærðfræði og myndmennt.  Einnig unnu þær í öðrum námgreinum og var öll kennsla miðuð við námsmarkmið í 2. bekk.  Allt var þetta undirbúið í samráði við umsjónarkennara.  Þar sem Kristjana María var nýbúin að leikstýra Grease hjá 7. bekk nutu börnin góðs af því og lærðu nokkra dansa úr leikritinu.
Vettvangsnám er mikilvægur þáttur í námi kennaranema.  Þar fá nemarnir reynslu sem nýtist þeim áfram í náminu og innsýn inn í starf kennarans og skipulagningu sem fylgir skólastarfinu. 
Börnin lærðu heilmikið á þessum dögum og nutu þess að vinna fjölbreytt og skemmtileg verkefni.  Við þökkum þeim Önnu Björgu og Kristjönu Maríu kærlega fyrir samveruna.   Hér má sjá myndir frá bílaþema.
Hanna

Athugasemdir