Skák í skólanum

Eins og áður hefur verið kynnt var Borgarhólsskóli valinn úr hópi grunnskóla sem þróunarskóli  í skák þetta skólaár...
Eins og áður hefur verið kynnt var Borgarhólsskóli valinn úr hópi grunnskóla sem þróunarskóli  í skák þetta skólaár.  Skákæfingar  hófust í haust  og sér Skákfélagið Goðinn um þær.  Æfingarnar eru á miðvikudögum  kl. 15 í stofu nr. 6.  Leiðbeinendur eru Smári Sigurðsson og Hermann Aðalsteinsson.  Okkur er mikið í mun að fá nemendur og foreldra til að stunda skákina því hún örvar rökhugsun og félagslega færni , Það hefur sýnt sig,  svo er hún líka  skemmtileg ef vel er að henni staðið.
Föstudaginn 30. janúar kom Björn Þorfinnsson forseti Skáksambands Íslands í heimsókn í skólann.  Björn heimsótti  yngri bekki árdegis  og afhenti nemendum 3. bekkjar bókina Skák og mát og ræddi við nemendur  um gildi skáklistarinna.  Björn  afhent skólastjóra kr. 250.000 styrk frá ráðuneyti  Menntamála og Skáksambandi Íslands  sem nota á til að efla skákina í skólanum .   
Kl. 13 sama dag tefldi Björn fjöltefli við 25  nemendur  Borgarhólsskóla og vann þær allar nema eina. Ýmsir vörðust þó lengi og vel.   Benedikt Jóhannsson  í 9. bekk gerði jafntefli  við Björn og þegar skákin var rakin til baka töldu  menn Benedikt hafa átt góða  vinningsmöguleika um skeið  enda er Benedikt einn okkar fremsti skákmaður.
Helgin var svo tekin í skákæfingar.  Það er von okkar í skólanum að foreldrar sýni skákinni áhuga og hvetji nemendur  til að sækja æfingarnar á miðvikudögum.  Svo er um að gera að tefla heima.
 
HV

Athugasemdir