Tónlist fyrir alla

Dagskráin “Ég hef taktinn” í flutningi Djasskvartetts Reykjavíkur   Sigurður Flosason, saxófónn Eyþór Gunnarsson, píanó  Tómas R...
Dagskráin “Ég hef taktinn” í flutningi Djasskvartetts Reykjavíkur
 
Sigurður Flosason, saxófónn
Eyþór Gunnarsson, píanó 
Tómas R. Einarsson, kontrabassi
Gunnlaugur Briem, trommur
 
 
Meðlimir Djasskvartetts Reykjavíkur komu í heimsókn í Borgarhólsskóla þriðjudaginn 13.nóvember og spiluðu fyrir nemendur á þrennum tónleikum. Fyrir unglinga kl. 8:15, miðstig kl. 9:35 og yngsta stig kl. 10:55
 
Á tónleikum sínum léku þeir félagar fjölbreytta efnisskrá djass-“standarda” eftir erlenda höfunda ásamt íslenskum og erlendum alþýðulögum. Má þar t.d. nefna I Got Rhythm eftir Gershwin, Kvæðið um fuglana eftir Atla Heimi Sveinsson og norsk/íslenska þjóðlagið Siggi var úti.
 
Kvartettinn lagði með dagskrá sinni áherslu á að djassinn er skemmtileg, fjölbreytt og aðgengileg tónlist og að færa megi hvaða tónlist sem er í djassbúning.
 
Nemendur nutu þessara frábæru tónleika og þessir snillingar náðu svo sannarlega til þeirra með leikrænum tilburðum og alls konar gamni og fróðleik, samhliða hljóðfæraleik eins og hann gerist bestur.
 
13. nóvember kl. 20:30 verða þeir félagar svo með tónleika í Safnahúsinu á Húsavík.
 
 
 
 
 
HV

Athugasemdir