Fréttir

Spurning dagsins - nr. 3

Spurt er um ár. Tvö félög sameinast og verða að einu en það félag skipti reyndar nýlega um nafn og ber nú enskt heiti. Sama ár sömdu tvær þjóðir um vopnahlé í sérstöku stríði. Stríðin urðu þrjú á nokkrum áratugum og þau einu sem önnur þjóðin hefur háð. Hvert er árið?
Lesa meira

SPURNING DAGSINS - NR. 2

Nefndu a.m.k. 3 götur á Húsavík þar sem enginn er skráður til heimilis!
Lesa meira

Spurning dagsins - nr. 1

Við hefjum leikinn á mynd. Hér er búið að setja saman fjórar myndir.
Lesa meira

Vandi er um slíkt að spá

Jólagetraunin 2017 var kynnt á unglingastigi í dag og ber hún heitið Vandi er um slíkt að spá. Næstu tólf skóladaga fá nemendur á unglingastigi eina spurningu á dag og þurfa að svara henni samdægurs fyrir miðnætti.
Lesa meira

Veðurspá og skólahald

„Norðaustan og norðan 15-23 m/s, hvassast SA-lands, en norðan 18-23 á morgun. Hvessir talsvert um tíma á SA-landi í nótt. Snjókoma eða éljagangur N- og A-lands og bætir verulega í ofankomu N-lands á morgen‟. Svona hljóðar veðurspá morgundagsins og haft er eftir veðurfræðingu á Veðurstofu Íslands að það verði einfaldlega blindbylur um allt norðanvert landið á morgen, fimmtudag. Það mun vara framundir aðfararnótt laugardags.
Lesa meira

Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu hefur verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember, samkvæmt tillögu menntamálaráðherra frá árinu 1996. Dagur íslenskrar tungu er opinber fánadagur og því var þjóðfáni Íslendinga dreginn í heila stöng.
Lesa meira

Námsmarkmið & hæfnikort

Skólinn hefur farið í gegnum talsverðar breytingar á námsmati síðustu árin. Sömuleiðis hefur Mentor verið að gera miklar breytingar á sínu kerfi er varðar námsmat og sýnileika. Markmið er hagur nemenda.
Lesa meira

Fjölbreytt starf Stúlknakórsins

Við skólann er starfsræktur skólakór, Stúlknakór Húsavíkur. Eins og nafnið gefur til kynna eru aðeins stúlkur í kórnum. Kórstjóri er Ásta Magnúsdóttir en bæði er kórinn valgrein á unglingastigi og opinn nemendum á yngri stigum.
Lesa meira

Alþjóðlegur baráttudagur gegn einelti

Í dag er alþjóða baráttudagur gegn einelti. Einelti, nei, takk! Á þessum degi unnu nemendur margvísleg verkefni í tengslum við baráttuna gegn þessu samfélagsmeini. Með verkfærum Jákvæðs aga er unnið að því að gera nemendur að betri manneskjum á hverjum degi.
Lesa meira

Vel bókum búið

Skólabókasafn skólans er vel bókum búið. Það hefur verið markmið að fjárfesta í nýútkomnum bókum fyrir alla aldurshópa. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, bæði þeir nemendur sem rétt eru að ná tökum á lestrinum, lengra komna og allt þar á milli.
Lesa meira