Fréttir

Frá aðalfundi Foreldrafélagsins

Aðalfundur Foreldrafélags Borgarhólsskóla fór fram í vikunni en það hefur orðið ánægjuleg vakning í starfi félagsins. Endurkjörin í stjórn félagsins voru þau Eysteinn Heiðar Kristjánsson, Hallgrímur Jónsson, Huld Hafliðadóttir, Katrín Laufdal, Katrín Ragnarsdóttir og Rakel Dögg Hafliðadóttir. Kosning fór fram um fulltrúa foreldra í skólaráð skólans og hlutu þau Eysteinn Heiðar Kristjánsson og Sigríður Hauksdóttir kjör í það.
Lesa meira

Næsta skólaár / Next school year

Skóladagatal næsta skólaárs, 2019-2020 liggur fyrir og við hvetjum foreldra til að kynna sér það. Skólabyrjun er áætluð 26. ágúst. Haustfrí er ráðgert 21. – 22. október og Litlu jólin 20. desember. Next years school calendar for 2019-2020 is available for viewing and we encourage parents to look at that. The school will start on the 26th of August. Winter vacation is on the 21st and 22th of October and we have the last day before Christmas break on the 20th of December.
Lesa meira

Skólalok / Ending of the schoolyear

Skólalok nemenda fyrsta til níunda bekkjar fara fram næstkomandi föstudag kl. 17:00 í Íþróttahöllinni á Húsavík. Kennarar afhenda námsmat skólaársins ásamt öðrum gögnum. The ending of the schoolyear for student in first to ninth grade takes place this coming Friday at 5PM in the Sportshall next to Borgarhólsskóli. Students will have their assessment for this schoolyear.
Lesa meira

Hvalaritun

Nýlega fóru nemendur í hvalaskoðun og siglingu um Skjálfanda í boði Norðursiglingar. Eitt af þeim verkefnum sem nemendur í níunda bekk unnu að í tenglum við þessa vettvangsferð var ritunarverkefni og var blásið til ritunarsamkeppni. Verkefnið fólst í að rita Norðursiglingu þakkarbréf. Sá nemandi sem sigraði þessa litlu og góðlátlega samkeppni var Aþena Marey Ingimarsdóttir.
Lesa meira

Okkar Fólkið í blokkinni

Nemendur í 6. bekk lásu nýlega bókina Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson. Unnið var með efnið á fjölbreyttan hátt og var lokaverkefnið sérstaklega áhugavert. Nemendur unnu saman í hópum og bjuggu til sína eigin útgáfu af blokkinni og umhverfi hennar.
Lesa meira

Aðgengi fyrir alla?

Undanfarin ár hafa nemendur í áttunda bekk kannað aðgengi að stofnunum og fyrirtækjum fyrir fólk sem er í hjólastól. Við fáum lánaða tvo hjólastóla í Hvammi og skiptast nemendur á að aka sjálfir og hver öðrum um miðbæ Húsavíkur.
Lesa meira

Börnin hjálpa börnum

Nemendur fimmta bekkjar gengu í hús á Húsavík í marsmánuði til að safna fyrir ABC-barnahjálp. Alls söfnuðust 199.691 kr. sem er dágott. ABC-barnahjálp er íslenskt hjálparstarf sem stofnað var 1988 í þeim tilgangi að veita nauðstöddum börnum varanlega hjálp. ABC starfar í 8 löndum í Afríku og Asíu. Skjólstæðingar ABC eru þeir umkomulausu og markmiðið er að hjálpa þeim að lifa lífinu með reisn. Menntun er mikilvægasti hlekkurinn í að rjúfa vítahring fátæktar.
Lesa meira

Átakanlegur Þjóðleikur

Ein af skylduvalgreinum að þessu sinni fyrir unglingana okkar var leiklist. Borgarhólsskóli var í samstarfsverkefni við Þjóðleikhúsið. En leiklistarverkefnið Þjóðleikur, sem Þjóðleikhúsið hleypti af stokkunum fyrir rúmum tíu árum, hefur vaxið og dafnað ár frá ári. Markmiðið var frá upphafi skýrt og hefur ekkert breyst: Að tengja Þjóðleikhúsið á lifandi hátt við ungt fólk, 13-20 ára, á landsbyggðinni og efla þannig bæði áhuga þess og þekkingu á listforminu.
Lesa meira

Annað sæti í Skólahreysti

Nýlega fóru fram norðurlandsriðlar í Skólahreysti í Íþróttahöllinni á Akureyri. Þar öttu kappi nemendur í skólum utan Akureyrar annarsvegar og hinsvegar á Akureyri. Lið Borgarhólsskóla var skipað þeim Alex Jónssyni, Dagbjörtu Lilju Daníelsdóttur, Heimi Mána Guðvarðssyni og Hildi Önnu Brynjarsdóttur auk varamannanna Jóhannesi Óla Sveinssyni og Sylvíu Lind Henrýsdóttur. Þau voru skólanum sínum til mikils sóma
Lesa meira

Allskonar kynsegin

Nýlega kom fulltrúi frá Samtökunum ´78 í heimsókn í skólann. Samtökin eru baráttu- og hagsmunafélag hinsegin fólks á Íslandi. Til hinsegin fólks teljast m.a. samkynhneigðir, tvíkynhneigðir, pankynhneigðir, eikynhneigðir, trans fólk og intersex fólk.
Lesa meira