Allir með reiðhjólahjálm

Umferðarlög tóku ákveðnum breytingum núna um áramótin. Skylda barna til að nota hlífðarhjálm við hjólreiðar er færð í lög og nær nú til barna yngri en 16 ára í stað barna yngri en 15 ára. Það þýðir að allir nemendur skulu nota reiðhjólahjálm við hjólreiðar. Notkun snjalltækja er nú sömuleiðis bönnuð reiðhjólafólki á ferð.
Lesa meira

Símkerfi skólans óvirkt

Til upplýsingar þá er símkerfi skólans óvirkt og verður um sinn. Ástæðan eru rafmagnstruflanir sem voru á svæðinu fyrir jól. Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda. Við bendum á netfangið skoli@borgarholsskoli.is sem og netföng starfsfólks. Skólastarf hefst mánudaginn 6. jan. næstkomandi. Sáumst.
Lesa meira

Dansað í kringum jólatréð

Nemendur fögnuðu saman á Litlu jólum í dag. Í upphafi hittust nemendur í sínum heimastofum til að eiga saman notalega stund áður en haldið var í Salinn. Jólasveinarnir úr Dimmuborgum litu í heimsókn og gerðu glens og gaman í nemendum. Að því loknu var dansað í kringum jólatréð við undirleik stórsveitar Tónlistarskólans. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá deginum.
Lesa meira

Og það varð gos

Hluti nemenda í sjötta og sjöunda bekk vann verkefni í jarðfræði og bjó til eldfjall. Ýmsum efnum var blandað saman og þeir hönnuðu líkan sem þurfti að mála og gera raunverulegt. Úr varð eldfjallaeyja líkt og miðju Kyrrahafinu.
Lesa meira

Jólasöngsalur með gestum og gangandi

Það er löng hefð fyrir söngstund á Sal skólans. Í morgun buðum við gestum að vera með á jólasöngsal og fylltist salurinn af fólki sem vildi njóta þessarar stundar með okkur. Við þökkum fólki kærlega fyrir komuna. Ásta Magnúsdóttir leikur undir á flygilinn ásamt léttsveit frá Tónlistarskóla Húsavíkur.
Lesa meira

Jólatré skólans

Það er árviss viðburður í Borgarhólsskóla að nemendur sjöunda bekkjar sækja jólatré skólans sem prýða mun Salinn á Litlu jólum. Það er ekki yfir langan veg að fara en tréð sem er hið myndarlegasta er sótt í skógræktina í Melnum í Húsavíkurfjalli. Nemendur fóru ásamt kennurum að sækja tréð sem umhverfisstjóri Norðurþings var búinn að velja.
Lesa meira

Söngur á Skógarbrekku

Nemendur fyrsta bekkjar fóru í heimsókn á Heilbrigðisstofnuninni, Skógabrekku til að syngja jólalög fyrir heimilisfólk. Söngurinn vakti mikla gleði og kallaði fram bros á þeim sem á hlýddu. Krakkarnir stóðu sig reglulega vel og eins og segir í laginu, „þá lífgar samt upp, og léttir þungt skap, líflegur ys og þys. Heimsóknin tókst vel og mikil upplyfting í skammdeginu að fá börnin í heimsókn.
Lesa meira

Óvissa um skólahald í morgun

Samkvæmt tilkynningu frá RARIK sem gefin var út í morgun má búast við rafmagnstruflunum í dag, fimmtudag. Rafmagn fór af Húsavík í morgun og var óstöðugt. Skólastjórnendur ákváðu að fella niður skólahald af þessum sökum. Það er síður léttvæg ákvörðun enda gæti rafmagn haldist inni í allan dag. Í því felst óvissan. Aðföng bárust ekki í skólann vegna ófærðar. Hluti skólans er alveg rafmagnslaus vegna bilunar. Símkerfi og internet liggur niðri.
Lesa meira

Skólahaldi aflýst á morgun - No school tomorrow

Skólahaldi er aflýst á morgun og hvatt til að halda sig innan dyra. There is no school tomorrow and people asked to stay indoor.
Lesa meira

Skólahaldi lýkur fyrr / The school will close early

Skólahaldi lýkur kl. 1300 í dag. At 13:00 today the school will close.
Lesa meira